miðvikudagur, júní 14, 2006

Bróðir minn les ekki bloggið mitt

Þetta er huggulegt eða hitt þó heldur! Fyrir ykkur sem ekkert vitið á má ég til með að segja ykkur að ég á einn bróður. Einn skitinn lítinn bróður. Sem situr við tölvuna aaaaaallan daginn en gefur sér samt sem áður ekki tíma til að skoða bloggið mitt. Frábært. Ef einhver heyrir hann eða sér er sá hinn sami beðinn um að spyrja hann frá mér og einkasyni mínum (sem n.b. er nefndur í höfuðið á þessum einkabróður mínum) hvort kvenkyns máfar heiti eitthvað sérstakt. Sínusarnir hafa tvímælalaust færst upp um eitt sæti á vinsældalistanum.

3 Comments:

Blogger Gummi said...

Mæfa! :D

9:39 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ÉG LES FOKKÍNG BLOGGIÐ ÞITT MANNESKJA, HVAÐ ER ÞETTA!!! Er bara tryllingslega upptekinn við hina furðulegustu hluti... og já, að reyna að sinna vinnunni minni.

Kvendýr máfs ber ekkert sérstakt heiti, ekki eins og örn - assa!

Og hafðu það!!!

3:30 e.h.  
Blogger Tinna said...

Loksins. Takk. Eða þannig. Gummi - kannski ertu bara bróðirinn sem ég eignaðist aldrei?

1:32 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home